13. júlí 2007 klukkan 18:42
Smá pælingar
Af hverju þarf maður alltaf að gá hvort maður geti sleikt olnbogann þó að allir vita að það er ómögulegt?
Af hverju ætli maður þurfi alltaf að gá hvort veggur sé nýmálaður, þegar maður sér viðvörun um það?
Skyldi "franskur koss" bara kallast "koss" í Frakklandi?
Hver ætli hafi verið sá fyrsti sem horfði á kú og sagði: "Ég held ég kreisti þetta dinglumdangl neðan á henni og drekki það sem út kemur"?
Af hverju límist ekki límtúpan saman?
Af hverju sér maður aldrei fyrirsögnina: "Skyggn manneskja vinnur í lottó"?
Af hverju er orðið "skammstöfun" svona langt orð?
Af hverju er hnefaleikahringurinn ferhyrndur?
Af hverju er appelsínusafi framleiddur úr gerviefnum og uppþvottalögur búinn til úr ekta sítrónum?
Af hverju er það kallað "rush-hour" einmitt þegar umferðin gengur sem hægast?
Af hverju er orðið orðabók í orðabókum?
Af hverju er ekki til kattamatur með músabragði?
Af hverju eru flugvélar ekki framleiddar úr sama efni og "svarti kassinn" sem er óbrjótandi og erfitt að eyðileggja?
Af hverju eru allar brauðristar með stillingu sem brenna brauðsneiðar í kolamola sem enginn vill borða?
Ef maður á jarðarskika, á maður hana þá alveg niður að kjarna jarðarinnar?
Af hverju geta konur ekki sett á sig maskara án þess að hafa opinn munninn?
Af hverju klæjar mann alltaf í nefið þegar maður er búinn að óhreinka hendurnar?
Af hverju er mínútan miklu lengur að líða fyrir utan klósetthurðina en innan?
Ef ástin er blind, af hverju eru sexý undirföt þá svona vinsæl?
Hvers vegna vantar okkur alltaf eitthvað af draslinu sem við geymdum uppi á lofti í 3 ár, 3 dögum eftir að við hentum því loksins?
Ef það er satt að við séum hér til að hjálpa öðrum, hvað eru þá hinir að gera hér?
Ef ólívuolía er búin til úr ólívum, hvaðan kemur þá barnaolían?
Elín Katrín
13. júlí 2007 klukkan 18:41
Elín Katrín
03. júlí 2007 klukkan 09:51
blogg síðu hjá mbl. slóðin er ellasprella.blog.is Ég verð samt áfram með þessa síðu líka. Elskið lífið.
Elín Katrín
01. júlí 2007 klukkan 16:10
Maðurinn minn sendi mér þennan.....úff gott að ég er með frábæran húmor...segi nú ekki annað.
Í dag er alþjóðlegur dagur fólks með sérstakar þarfir. Vinsamlegast sendu hughreystandi skilaboð til einhverrar vangefinnar persónu semþú þekkir, eins og ég var að gera. Mér er nokk sama hvort þú sleikir rúður, hefur mök við búfénað, kjósir Ástþór til forseta, eða jafnvel öðru hvoru kúkir á þig. Þraukaðu áfram sólargeisli, þú ert sérstök.
Ég kann að taka svona djóki, Guði sé lof.
Hafið það gott restina af deginum elskurnar.
Elín Katrín
24. júní 2007 klukkan 20:59
Það er gott að vera duglegur :) Eitthvað gott sem gerist innra með manni. Ég er búin að taka allt eldúsið mitt í gegn, var að fá frystiskáp og þreif allt hátt og lágt, henti og henti alskyns dóti, ég af öllum, yfirleitt má engu henda ;) Tók okkar herbergi í gegn líka, pakkaði rimlarúminu þar sem Carmen Helga sefur aldrei nokkur tíma í því. Setti kommóðuna hennar inn í stofu og tók leikföngin hennar úr stofunni og bjó til dótaskot inn í herbergi. Svaka flott, dótið allt undir múmínálfunum sem ég málaði á vegginn. Svalahúsið var tekið í gegn líka og nú má ekki lengur reykja þar, kannski að það hjálpi manni að hætta að reykja ;) Við máluðum allt hvítt í svalahúsinu, hvíttuðum panelinn og alles, lögðum dökkgrátt filtteppi á gólfið, máluðum hillurnar hvítar og svo var brunað í Rúmfó og keyptir rauðir kertastjakar, rauð motta og í Sösterne gröne voru keyptar hvítar körfur með rauðu fóðri, nú er þetta semsagt orðið náms og tómstundaherbergi. Ég keypti síðan líka bleika mottu í okkar herbergi og nokkur ilmkerti og baðpúða til að hafa það notó í baðinu. Nú er bara að bíða mánaðarmótanna þar sem mig vantar gardínur í svalahúsið og eldúsið og svo eitt og annað til að gera fínt. Núna er ég að taka stofuna í gegn og gera hana doldið hvíta, mála húsgögn setja hvítt teppi á antikstólana mína og hví kerti í stjakana. Ég er eitthvað voða veik fyrir hvítu og bleiku þessa dagana :) Ég er samt til í að kaupa nokkra klukkutíma, ef einhver á afgangs, mínir fara svo fljótt og allt í einu er bara komin nótt :) Hafið það gott elskurnar.......líf og dauði er á tungunnar valdi, þannig að muna að tala jákvæðni, líf og gleði inn í líf sitt.
Elín Katrín
23. júní 2007 klukkan 19:59
Flestir eru semsagt game :)Ertu game?
22. maí 2007
SWING ( 0% / 0 atkvæði )
Í SYNGJANDI SVEIFLU ( 11% / 1 atkvæði )
GAMAN SAMAN ( 11% / 1 atkvæði )
MEÐ ÞÉR ÉG VILDI YFIR ARABÍU FARA ( 11% / 1 atkvæði )
EÐA SAHAHARA ( 0% / 0 atkvæði )
JÁ....GAME ( 33% / 3 atkvæði )
HVERSKONAR SPURNING ER ÞETTA? ( 11% / 1 atkvæði )
STEIPANDI Á STEIPUBÍL ( 0% / 0 atkvæði )
ÚT Á ÞEKJU ( 0% / 0 atkvæði )
ALLT ER VÆNT SEM VEL ER GRÆNT ( 22% / 2 atkvæði )
Elín Katrín
07. júní 2007 klukkan 15:36
Talandi um regnföt.
Kona nokkur hélt fram hjá manni sínum á daginn meðan hann var í vinnu.
Dag einn er konan í rúminu með elskhuganum þegar húsbóndinn á heimilinu kemur óvænt akandi heim að húsinu. Konunni brá að sjálfsögðu í brún og skipar elskhuganum að grípa fötin sín og hoppa út um gluggann.
Elskhuginn lítur út um gluggann og segist ekki geta farið út því það sé grenjandi rigning. Ef maðurinn minn sér okkur hérna drepur hann okkur bæði, segir konan. Elskhuginn hefur því engin önnur ráð en að hoppa út um gluggann og hraða sér á brott frá húsinu.
Þegar hann kemur út á götu lendir hann í flasinu á hóp af skokkurum. Hann ákveður að slást hópinn þótt hann sé nakinn því hann vill komast óséður frá húsinu.
Hinum hlaupurunum var að sjálfsögðu starsýnt á nakta manninn og einn þeirra spurði hvort hann hlypi alltaf nakinn. "Já," sagði hann, "það er svo notalegt að láta ferskt loftið leika um hann meðan maður er að hlaupa." "En hleypur þú alltaf með fötin undir hendinni?" spurði skokkarinn. "Já, svo ég geti klætt mig þegar ég er búinn að hlaupa, áður en ég tek strætó heim," sagði sá nakti.
"En hleypur þú alltaf með smokk?" spurði hlauparinn. "Nei, nei, bara þegar það er rigning!!
Elín Katrín
06. júní 2007 klukkan 18:47
Þannig er mál með vexti að ég bý í félgagslegri íbúð, þannig verð ég að búa á meðan ég hef ekki ráð á að kaupa mér mitt eigið húsnæði. Ég er núna búin að vera á biðlista eftir annari íbúð í bráðum 2 og hálft ár......ástæðan, jú íbúðin sem ég er í er gjörsamlega eað springa utan af okkur. á meðan ég er búin að vera að bíða er önnur manneskja búin að fá afhentar 2 íbúðir og á undan aðra til....nú bíður hún eftir einni íbúðinni í viðbót þar sem hún vll íbúð með garði....FREKT FINNST MÉR EN ÞAÐ ER EKKI MITT AÐ DÆMA HENNAR VANSÆLD. Ég hefði samt verið ótrúlega þakklát fyrir eina af hennar íbúðum. Þau svör sem ég hef fengið þegar ég hef spurt út í þetta allt saman eru svo dæmi séu tekinn....ÞÚ ERT EKKI LENGUR BARNAVERNDARMÁL (OG ER ÞAÐ EKKI BARA GOTT)....ÞÚ ERT BARA MEÐ ELDRI BÖRNIN ÞÍN AÐRA HVERJA HELGI (ÞAÐ ER NÚ VARLA PLÁSS FYRIR ÞAU ÞÆR HELGAR, FYRIR UTAN ÞAÐ AÐ ÞAU ERU UNGLINGAR SEM ÞURFA AÐ SOFA MEÐ LITUM SYSTRUM Í HERBERGI).......Eg vísaði á að ég vissi um fólk í mikilli neyslu sem væri löngu búin að missa öll sín börn og byggju í flottum 5 herbergja íbúðum með alla undirheima Reykjavíkur inn á gafli hjá sér.....Svörin stóðu ekki á sér frekar en fyrri daginn......HVORT VILDIR ÞÚ NÚ FREKAR VERA Í STÓRRI ÍBÚÐ Í NEYSLU EÐA LÍTILLI ÍBÚÐ EDRÚ (ER ÉG HÁLFVITI? ÉG VAR BARA EKKERT AÐ SPYRJA AÐ ÞVÍ) Svo núna ákvað ég að tala við lækni dóttur mnnar þar sem hún er greind með ADHD og biðja hann um vottorð því til staðfestingar að hún hefur ekki pláss fyrir skriborð og hvað þá pláss til að athafna sig í ró og friði, og svona börn þola kki áreiti....hann skrifaði vottorðið enda mikill gæðamaður.....ég talaði líka við fleiri aðila og fékk vottorð því til staðfestingar að þetta sé ekki nokkuri manneskju bjóðandi og fékk þau vottorð, en viti menn í dag fékk ég uppgefna punktatölu sem farið er eftir þegar fólki eru útvegaðar íbúðir.....EKKI NEMA SKITNIR 6 PUNKTAR..... OK aldur umsóknar minnar er 2 og hálft ár og ætti ég þá að minnsta kosti að fá 2 og hálfan punkt fyrir það, eða bara 3 en nei ég fæ 2 punkta eins og ég sé bara búin að bíða í 2 ár, húsnæðistaða m.t.t fjölsk stærðar. Ég bý hér með 3 börn og voru þær 2 þegar ég sótti um en sú 3 hefur nú bæst í hópinn svo eru eldri börnin hjá mér aðra hverja helgi og sú elsta kemur til með að vera hér í allt sumar. Ég fæ hinsvegar 1 punkt út á þetta og þessi eini punktur segir að ég sé að sækja um húnæði v. reglulegar umgengni við börn, jú rétt en þeir ættu að vera 4 þarna þar sem ég fæ engan punkt fyrir stækkun húsnæðis vegna breytinga á fjölsk stærð, en sá reytur gefur 3 punkta. Félagslegar og eða heilsufarslegar aðstæður 3 punktar sem gefnir eru ef nokkur vandkvæði eru bundin núverandi húsnæði en 7 ef mjög mikil vandkvæði eru bunin núverandi húsnæði, ég er með vottorð um að heilsufarslega séu mjög mikil vandkvæði bundin núverandi húsnæði en fæ samt bara 3. Ok...Hljómar kannski eins og eitthvað væl, en því betu sem maður stendur sig í lífinu því minna hjálpar hið opinbera þér. Ég skrifa þetta líka hér til þess að þurfa ekki alltaf að vera að svara sömu spurningunum frá vinum og vandamönnum sem eðlilega hafa áhuga og samúð með mér í þessu....Ok ég veit ekkert eftir hverju er farið eða afhverju þetta er svona, en ef einhver getur svarað því þá endilega bara....Ég er svo sannarlega búin að vera í Pollíönnuleik og allt þar á milli en þetta er ALLT OF HELVÍTI ÞRÖNGT HÉRNA HJÁ MÉR OG ÉG VILDI ÓSKA AÐ ÞEIR SEM AÐ ÞESSU STANDA MYNDU VILJA ÞIGGJA HJÁ MÉR KAFFIBOÐ ÞVÍ TIL SÖNNUNAR.....En það er nú ekki allt alslæmt....Í dag á ég áfangaafmæli og er 4 ára.....gaman gaman....ég einaðist líka nýjan bíl í dag Toyota Raw4 svak flottann.....og ég fór í óvissuferð sem minn heittelskaði skipulagði fyrir konuna sína síðustu helgi og fórum við á Hótel Örk og snæddum 3 rétta kvöldverð fyrra kvöldir og fórum svo í Selfossbíó á myndina Next...sem var mjög góð, á Laugardeginum var brunað í bæinn og verslað föt og alles og svo var brunað uppí Skógarskóla þar sem 30 ár eru liðinn síðan kallinn var þar við nám, þar hittum við gamla samnemendur hans og horfðum á gamlar slædsmyndir frá þessu tímabili og bara svaka fjör....um kvöldið var svo 5 rétta dýrindismáltíð á Örkinni. Daginn eftir sóttum við prinsessurnar 3 sem voru búnar að eiða helgini í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa á bakkanum sem eru náttúrlega BARA BEST Í HEIM...TAKK MAMMA OG PABBI. á föstudaginn ætlum við út úr bænum með stelpurnar í ferðalag og leigðum við fellihýsi í heila viku, stefnan er tekinn eftir veðurspá og á að fara að leita að góða veðrinu, veiða og hafa gaman....ég á veiðivöðlur ,heilgalla og maðurinn minn gaf mér veiðistöng og veiðihjól í dag svo núna er bara að reyna að næla sér í veiðidelluna :) Stefna kvöldsins er svo fundur með dynjandi lófataki þegar ég tjá mig um sigurinn. Hafið það næs og ég er ekki bölsýnismanneskja...ég er bara þreytt á þengslum. Ég safna kannski undirskriftarlista mér til handa...HVERJIR ERU GAME?
Elín Katrín
31. maí 2007 klukkan 11:44
Að Ásta Lovísa sé dáin og vil ég votta fjölsk hennar og öðrum ættingjum og vinum dýpstu samúðarkveðjur. Guð vaki yfir ykkur öllum. Guð geymi þig Ásta Lovísa....ég þekkti þig ekkert en er ein af þeim sem alltaf fylgdist með þér á blogginu þínu. Þetta fær mann til að hugsa hvað maður hefur það nú gott. Er á hraðferð og blogga kannski meira seinna. Knús
Elín Katrín
22. maí 2007 klukkan 16:33
Er sumarið komið?
05. apríl 2007
Nei ekki fyrr en sumardagurinn fyrsti er runninn í garð ( 0% / 0 atkvæði )
Já og góða skapið með ( 40% / 4 atkvæði )
Nei og ég er þung (þungur) í brún ( 0% / 0 atkvæði )
Nei en vorið er komið. ( 60% / 6 atkvæði )
Það er komið sumar, sól í heiði skín. ( 0% / 0 atkvæði )
Elín Katrín